Kvik-Yndi ehf.
Hér fyrir neðan er gamalt efni sem var á heimasíðu minni sem var lokað fyrir nokkrum árum.
Það er spurning hvort þetta efni eigi vel við í dag, en þetta var alla vega sniðugt á sínum tíma.
UPPSKRIFTIR:
KOKKTEILSÓSA:
1/2 bolli majones
1/2 bolli tómatsósa
Hrærið saman þangað til að drullið verður grænt.
NÚÐLUR:
1 pakki núðlur
Eldið núðlurnar við háan hita.
BRAUÐSNEIÐ MEÐ SKINKU:
1 brauðsneið
100 fersentimetra skinkusneið
1 smjör
Takið brauðsneiðina og smyrjið smjörinu létt á brauðsneiðina þannig að 98 % hennar eru þakin smjöri.
Leggið skinkusneiðina létt á brauðið þannig að hornið á henni nemi við horn brauðsneiðarinnar.
ÍSLENST MÁL
Ég er mikkill Íslensku-vinur og ég leg mikkla áherslu á að skriva okar ástkæra, ilhíra túngumál rét. Anars væri íllt í ebbni, því þá mindu Íslensku fræðíngarnir sem vinna niðrí bæ ellta mig á röndum firir að skriva eki réta Íslensku. Eins og þið vidið, þá er ég firirmind Íslenskra úngmena og ef ég skrivaði eki Íslenskuna rét þá mindu öll úngmeni á íslandi skriva hana vittlaust líka. Tak firir.
VIÐTAL
,,Hann rekur við, hann rekur við, hann rekur viðgerðaverkstæði" sagði skáldið einu sinni en það ætla ég ekki að gera hér, heldur ætla ég að taka viðtal við engan annan en Undrahundinn Snata sem komst í fréttirnar fyrir stuttu þegar hann gekk niður Laugaveginn með annað augað lokað.
ÉG: Segðu mér Snati, hvernig var að ganga með annað augað lokað niður allan Laugaveginn?
SNATI: Ja, það var náttúrulega erfitt en þegar maður hefur svona stuðning eins og ég fékk, þá er allt hægt.
ÉG: En hver er maðurinn á bak við Undrahundinn Snata?
SNATI: Ég er nú bara venjulegur heimilishundur, ég ólst upp í Smáíbúðahverfinu og átti mjög gott líf, fyrir utan það að ég missti langömmu mína þegar ég var mjög ungur.
ÉG: Já, það hlýtur að hafa verið mikið áfall.

SNATI: Það var það, ég svaf ekki á daginn, fékk martraðir á nóttinni og gat ekki borðað meira en tvær Pedigree dósir á dag.
ÉG: Ég skil, en vindum okkur að öðru, því nú ert þú sagður mikill húmoristi....
SNATI: Jú, það segja nú margir kunningjar mínir.
ÉG. Gætirðu nokkuð reytt af þér eina gamansögu?
SNATI: Jú, það var eitt sinn þegar Jónas bóndi í Skaftárhlíð ætlaði að moka flórinn, að þar kemur aðvífandi þessi líka feiknarstóri Búrhvalur. Þá varð nú honum Jónasi á orði: ,,Það ætti nú bara að loka þig inni í búri!" Ég fæ aldrei leiða á þessum brandara.
ÉG: Já, þetta var nú aldeilis skemmtileg saga, en nú veit ég að margir eru að velta einni spurningu fyrir sér...

SNATI: Nú, hvað er það?
ÉG: Sérðu eftir einhverju?
SNATI: Nei, ekki nema að ég týndi 100 kalli þegar ég datt um skóreim þegar ég var að ganga Laugaveginn um daginn og ég vil hér með nota tækifærið til að auglýsa eftir honum. Hann er gulllitaður, með mynd af fiski framan á, og það stendur ,,Eitthundrað krónur" aftan á honum. Síminn minn er 55-SNATI.
ÉG: Já, ef þið hafið séð gulllitaðan 100 kall þá vinsamlegast hringið í 55-SNATI, en ég kveð héðan úr miðbænum og sendi boltann aftur upp í stúdíó.

Hæ mamma! Ég er á Internetinu!
MÁLSHÆTTIR DAGSINS:
"Enginn er verri þótt hann sé dauður"
"Eigi er seyðið sopið nema úr öskunni sé komið"
"Sjaldan er teppi teppi nema á gólfi sé"
LITAKASSINN
Því miður hefur enginn sent mér myndir ennþá til að birta hér en krakkar, endilega verið dugleg að lita og krassa og senda mér svo krotið í pósti. Ef þið eruð heppin þá mun ég kannski birta krassið ykkar þótt það sé allt ljótt.
BARNASAGAN
Einu sinni voru tveir félagar, þeir Arnfinnur Api og Fornmundur Fugl. Þeir áttu heima í Vinaskógi. Þar voru allir vinir. Einn dag í Vinaskógi, þegar sólin skein og allt lék í lyndi, sá Arnmundur Api að Kalli Krókódíll var að stríða Fidda Flóðhesti því hann var svo feitur og ógeðslegur. Það fannst Arnmundi ekki gott og þá sagði hann: ,,Nú munu hausar fjúka!!" og þá tók hann upp Möndulbrand, exina sem hann fékk í afmælisgjöf þegar hann var 5 ára og klauf Kalla Krókódíl í herðar niður. Svo hjó hann hausinn af Fidda Flóðhesti og öllum hinum dýrunum í Vinaskógi og þá var hann einn eftir og var mjög einmana þangað til að öxin hans byrjaði að tala. Þá varð hann aldrei aftur einmana.

TILKYNNING
Sá sem skildi eftir bifreið með númerinu MR 474 hér fyrir utan er vinsamlegast beðinn um að færa hana sem fyrst.
Nýjung! Smellið hér til að senda höfundi póst!
![]()